Velheppnað námskeið í kælitækni

Íshúsið ehf hefur reglulega haldið námkseið þar sem farið er í helstu atriði kælitækni.  Í dag var eitt slík haldið þar sem kælimenn víðsvegar af landinu komu saman og fóru yfir helstu þætti sem snúa að viðgerðum á kælitækni. Teknir voru fyrir þeir þættir sem snúa viðgerðum á slíkum tækjum og greiningu bilana.  Námskeiðið var vel sótt og komust færri að en vildu.  Námskeiðið var kennt á mannamáli og með beinni þátttöku þeirra sem það sátu.  Þáttakendur námskeiðsins voru sáttir að lokum enda námskeiðið gert til að auka hæfni þeirra sem nú þegar höfðu reynslu af viðgerðum kælitækja.  Gera má ráð fyrir að næsta námskeið verði haldið í haust.

Gömlu góðu ísvélarnar

Íshúsið býður nú upp á gömlu góðu ísvélarnar, sem voru mjög algengar á Íslandi fyrir 2 áratugum þegar þær gengu undir nafninu “íslensku vélarnar”. Þetta voru ódrepandi vélar, sem hafa verið reknar í íslenskri fiskvinnslu í 3 áratugi og margar en í gangi.

Nýju vélarnar hafa verið þróaðar áfram og eru nú með rústfríum stál strokkum og fleiri góðum breytingum. Sett hefur verið upp heimasíða með vélunum: www.isvelar.is.

Varmadæla – eins og það á ekki að gera þetta

Varmadæla

Varmadæla

Íshúsið hefur selt varmadælur í rúman áratug á Íslandi, auk þess að hafa gert við varmadælur sem hafa verið sett upp af öðrum. Oft á tíðum hafa vinnubrögðin alls ekki verið samkvæmt því sem við í Íshúsinu teljum æskilegt. Það skal þó tekið fram um þessa mynd að við höfum aldrei komið að jafn illa uppsettri varmadælu og þessi.

Það skal sérstaklega tekið fram að þetta eru vinnbrögð sem tíðkast ekki, en þörf áminnig fyrir þá sem kaupa sér varmadælur að fá fagmenn til að setja upp varmadælurnar.

Kraftvifturnar komnar aftur

Purline  Viftur

Purline Viftur

Kraftvifturnar frá Purline eru komnar aftur, en vifturnar hafa verið uppseldar um nokkra hríð. Vifturnar hafa verið gríðarlega vinsælar vegna þess að þær eru stefnuvirkar og með mjög öflugum spaða.

Nýju logtag síritarnir komnir í hús


Íshúsið ehf hefur boðið upp á Logtag sírita í nokkurn tíma en síritarnir eru á stærð við greiðslukort. Í kjölfar þess að eftirspurn eftir þessum góðu síritum hefur aukist höfum við fjölgað tegundunum sem við nú bjóðum upp á.

Auk þess að vera með sírita sem skráir hita, bjóðum við nú upp á sírita sem getur skráð rakastig og svo önnur gerð sem er með ská til að skoða upplýsingar sem eru skráðar.

Frekari upplýsingar hérna.

Íshúsið flytur

Íshúsið hefur flutt í nýtt og betra húsnæði að Smiðjuvegi 4a, við hliðina á N1.

Hvetja til niðurfellingar virðisaukaskatts af varmadælum

Sveitarstjórn Dalabyggðar hvatti alþingismenn á fundi sínum þriðjudaginn 18. janúar sl. til að breyta lögum um virðisaukaskatt þannig að heimilt sé að endurgreiða virðisaukaskatt vegna kaupa á varmadælum og tengdum búnaði til húshitunar (sjá frétt á Skessuhorni).

Íshúsið tekur undir þessa hvatningu enda eru varmadælur umhverfisvæn og hagkvæm leið til húshitunar þar sem orkunýting er hámörkuð.

Öskuský yfir Reykjavík

Mynd frá Nasa

Öskuskýið í Reykjavík hefur ekki farið fram hjá neinum. Fyrir fólk með lugnasjúkdóma getur verið varasamt að anda að sér öskunni, sem og óþægindi sem askan veldur þegar hún smígur inn til fólks.

Mikil söluaukning hefur því verið í fjölbreyttum lausnum sem Íshúsið hefur boðið upp á til loftbætingar. Sérstaklega hefur orðið aukning í sölu á lofthreinsitækjum, þar sem tæki sópa til sín ösku ögnum og binda í mjög fíngerðum síum sem ná fínustu kornunum úr öskunni og koma í veg fyrir að hún dreifist frekar um umhverfið.

Lofthreinsitæki

Rakagjafar hafa einnig verið vinsælir en rakagjafarnir hækka rakastig í íbúðum og á viðverumstöðum, um leið þá bindast öskuagnirnar saman í stærri einingar og falla til jarðar.

Rakagefjandi kælitæki (uppgufunarkælar) er önnur lausn sem hefur verið mjög vinsæl, auk þess að hækka rakastig þá sjúga tækin einnig til sín agnirnar. Þau binda þær bæði saman og auk þess sem síur tækisins soga þær til sín.

Allar frekari upplýsinga er hægt að leita hjá sölumönnum Íshússins í síma 566 6000.