Kíktu í verslun okkar á Smiðjuvegi 4a
Kíktu í sýningerrými okkar á Smiðjuvegi 4a (græn gata) og fáðu upplýsingar um loftræstikerfi.

Verslaðu á netinu eða kíktu í loftræstibúðina á Smiðjuvegi 4a (græn gata)

Opnunartími: Má-Fi: 9:00-17:00, Fö: 9:00-16:00. 

Loftræstikerfi frá Airfi skapa ferskt og gott loft.  AIRFI er finnst tæknifyrirtæki sem hefur hannað kerfið fyrir Norrænar slóðir.  Kerfið virkar sérstaklega vel til að taka á sveiflum í hitastigi á milli hita og frosts ásamt sveiflum í rakastigi með orkusparandi keyrslu á köldum tímum.

Fólk eyðir sífellt meiri tíma innandyra og því skiptir máli hvers konar innilofti þú andar að þér. Airfi
loftræstikerfin og útblástursháfar geta haft framúrskarandi jákvæð áhrif á loftgæði
innandyra í þinni eign. Samfelld loftræsting Airfi veitir skilvirka loftræstingu fyrir eign þína allt árið um
kring. Hágæða loftræsting veitir heilbrigt inniloft á orkusparandi hátt, án þess að skerða lífsgæðin
heima fyrir.

Í byggingum þar sem margir búa er góð loftræsting enn mikilvægari. Loftræsting fjarlægir raka úr byggingunni. Loftræsting kemur í veg fyrir að raki sé leiddur inn í húsnæði, sem stuðlar að myndun myglu og sveppa. Varminn frá úttaksloftinu er endurheimtur, sem skilar bættri orkunýtingu.

Með vélrænni loftræstingu er ferskt útiloft flutt inn í bygginguna í gegnum eininguna.Loftræstikerfið er útbúið skilvirkum ISO grófum, 90% + ISO ePM 1 55% síum (áður flokkað sem G4+F7), sem sía loftið sem kemur utan frá og inn á við. Á úttakslofthliðinni er varmaskiptirinn varinn gegn óhreinindum með ISO Coarse 90% síum (áður G4).

Loftræstikerfið hitar upp síað inntaksloft áður en því er dreift um íbúðina. Ferskt inntaksloft við rétt
hitastig eykur lífsgæði. Þetta tryggir frískandi inniloft og loftið sem kemur inn blandast betur við loftið í herberginu.

Fullkomið kerfi fyrir minni íbúðir, litlar skrifstofur, skólastofur, sumarbústaði eða þar sem lítið pláss er fyrir slík kerfi.

Loftræstikerfi ofan á þurrkara og þvottavél

Loftræstikerfi ofan á þurrkara og þvottavél

 

 

 

Framleitt að fullu í Finnlandi og öll tækni þróuð í Finnlandi.

Með AFPS tækni er orkusparnaður AIRFI kerfanna A+

Kerfin eru mjög hljóðlát og til þess að sjá nákvæmlega hljóðgildi er hægt að sækja excel skjalið og fá nákvæmar upplýsingar um hljóð miðað við afköst sem kerfið á að vera á.

Kerfi er eingöngu 55,8 cm á breidd svo þau passa inn í baðskáp.

Hæðin er eingöngu 45 cm.  Þetta þýðir að það er bæði hægt að setja þvottavél og þurrkara undir kerfið!  Kerfin eru með þeim minnstu á markaðnum og sérstaklega hönnuð með það að markmiði að komast fyrir í skápum og minnka þannig plássið.

Mjög þægilegt er að opna kerfið til að skipta um loftsíur.

Helstu eiginleikar:

  • Innbyggð nettenging – innbyggð nettenging sem býður upp á beina tengingu við app án þess að þurfa að kaupa neinn annan búnað (kaupa þarf appið sérstaklega).
  • Innbyggð rakastýring – snjöll rakastýring með sjálfvirkni út frá rakastigi loftsins.
  • Gott loft – hljóðlátt og orkusparandi kerfi
  • Hljóðlátt – allt kerfið hefur verið hannað til að vera hljóðlátt
  • Auðvelt í uppsetningu – með uppsetningarbrakketti er hægt að flýta verulega fyrir uppsetningu og auðvelda hana.
  • Jafnt hitastig – jafnar hitastig með bypass ventli til þess að stýra hitastigi.  Dregur úr orkutapi á veturna og endurvinnur varmann og notar bypass til að kæla á sumrin (ef þörf er).
  • Rakadöggun – hallandi botn safnar döggunarvatni frá kerfinu.
  • Tenging við hússtjórnarkerfi – býður valmöguleika á að tengjast við fjölmargar tegundir af hússtjórnarkerfum.
  • AFPS tækni – tækni sem AIRFi hefur þróað til að auka nýtingu kerfisins á öllum tímum ársins og til að sleppa við auka forhitara. Snjallar mælingar sem notast við raunstöðu.
  • Stýringar – býður upp á að tengja við APP eða AIRFI veggstýringar
  • Eftirhitari – til að hita upp ef þörf er á meiri hita.

Tækniupplýsingar:

  • Stærð: 55,8 x 45 x 55,8 cm
  • Þyngd: 44 kg
  • Rör: 4 x 160, 1 x 125 mm
  • Eldhúsháfstengi: Já
  • Mesta útsog (100 pa):  385 m3/klst – 107 dm3/s
  • Mesti innblástur (100 pa):  356.4 m3/klst –  99 dm3/s
  • Rafmagnsnotkun; 230V,50Hz, 10A, max.1165W: Kló
  • Hitari:  920 W (rafmagn)
Umhverfisáhrif
Raunverulega áhersla á umhverfisgildi – í samanburði við önnur sambærileg kerfi er raunverulega áhrif á umhverfið, orkunotkun, val á íhlutum, sýn frá vöggu-til-grafar, pakkningum, auðveldu viðhaldi og lengri líftíma. Frekari upplýsingar um stefnu fyrirtækisins í umhverfismálum á heimasíðu airfi. Sjáðu hvernig airfi tekur þá í eco-heimilum framtíðarinnar.

Skoðaðu bækling á íslensku:

 

Tækniblöð og leiðbeiningar:

Skoðaðu aðrar lausnir fyrir heimili:

 

 

Þyngd 45 kg
Ummál (áætluð stærð á pakningum): 50 × 50 × 50 cm

Þér gæti einnig líkað við…