Loftrist MVMA-800-100
MVMA loftristar eru gerðar úr áli eða með plasthúðuðu áli og eru ætlaðar til notkunar innandyra. Þær henta víða þar sem þörf er á góðri loftun og loftflæði á milli rýma eða svæða.
Loftristarnar eru flatar og fáanlegar í fjölmörgum stærðum og litum til að passa sem best við umhverfið. Þær henta vel til loftunar í eða yfir hurðir, til dæmis á baðherbergjum og í eldhúsum. Einnig er hægt að nota þær til að lofta um skápa, í gluggakistum (til að bæta dreifingu á heitu lofti frá ofnum) eða fyrir ísskápa til að tryggja nauðsynlega loftrás.
Ristarnar eru hannaðar til að tryggja gott og skilvirkt loftflæði. Festing er einföld en armar standa aftan úr ristinni og eru notaðir til að festa hana við undirlagið.
Tæknilegar upplýsingar (MVMA-800-100):
- Gerð: MVMA
- Stærð (Lengd x Hæð): 800 x 100 mm
- Efni: Ál eða plasthúðað ál
- Loftflæðisflatarmál: 0,0248 m²
- Uppsetning: Með örmum
- Notkun: Inni











