
Flest nútíma heimili og sumarhús eru byggð þétt til að spara orku. Það er gott út af fyrir sig, en kallar á markvissa
loftræstingu. Lúsmý og veður geta einnig orðið til þess að gluggar séu lokaðir lengi án náttúrulegra loftskipta.
Því er sífellt algengara að setja loftræstikerfi í sumarhús svo alltaf sé ferskt loft, minni raki og betri heilsulæti – án þess að hleypa skordýrum inn.
Helstu ástæður fyrir loftræstingu í sumarhúsi
- Bætt loftgæði: síun og stöðug loftskipti fyrir heilnæmt inniloft.
- Minni rakamyndun: dregur úr myglu- og lyktarhættu.
- Þægindi: hægt að hafa glugga lokaða en samt fá ferskt loft.
- Vörn gegn lúsmýi: loftinntök með síum halda skordýrum úti.
- Orkunýtni: varmaendurvinnsla heldur álagi á hita/kælingu í lágmarki.
Loftræstikerfi draga inn ferskt loft og sía ryk og óhreinindi. Þannig fæst stöðugt ferskt loft jafnvel
þegar gluggar eru lokaðir. Kerfi með varmaendurvinnslu nýta varma úr fráblæstri til að hita útiloft áður
en því er blásið inn. Sé húsið ofheitt má nýta kaldara útiloft til að kæla rýmið með næturlögn.
Lausnirnar henta bæði í ný sumarhús og eldri hús
(meta þarf aðstæður í hverju tilviki)
Helstu lausnir
Loftræstikerfi
Algengust eru hefðbundin loftræstikerfi með varmaendurvinnslu. Vél er komið fyrir á lofti eða í skáp,
tengd út með rásum og inn-/útblæstri dreift um rými. Fjölmargar útfærslur eru í boði eftir stærð húss,
afköstum og kröfum um hljóð, stýringar og síun – allt frá einföldum uppsetningum til mjög fullkominna kerfa.
Skoða loftræstikerfi sem eru í boði.
Sambyggð loftræstieining
Sambyggð eining er nær heilli loftræstivél í þéttri einingu. Tveimur rásum er leiðt í gegnum útvegg
beint frá tækinu og má blása beint í rými eða tengja við barka/rásir. Slíkar einingar henta vel þar sem
pláss er takmarkað eða óskað er einfaldari uppsetningar.
Skoða sambyggðar lausnir sem eru í boði.
Lungu
Lungu eru einfaldar punktalausnir til loftræstingar. Keramískur varmaendurvinnslukubbur safnar hita úr
frálofti og hitar útiloft áður en því er blásið inn. Lungu má nota stök eða tengja saman fleiri einingar til að mynda
heildstæðara kerfi – hentugt í herbergi, gestahús eða smærri rými.
Skoða lungu sem eru í boði.
Frekari upplýsingar um útfærslur og dæmi um uppsetningar má finna á síðu um
loftræstingu fyrir heimili.
Hafðu samband
Ertu með spurningar? Hafðu samband við sölumann á [email protected],
hringdu í 566 6000 eða fylltu út formið hér fyrir neðan:




