Kíktu í verslun okkar á Smiðjuvegi 4a
Kíktu í sýningarrými okkar á Smiðjuvegi 4a (græn gata) og fáðu upplýsingar um loftræstikerfi.

Verslaðu á netinu eða kíktu í loftræstibúðina á Smiðjuvegi 4a (græn gata)

Opnunartími: Má-Fi: 9:00-17:00, Fö: 9:00-16:00. 

Vatnsvörn á loftinntök – ScandVane –

Víða er vandamál að vatn, snjór, ryk og salt berst inn um loftinntök með utanaðkomandi lofti. Þetta getur valdið skemmdum á loftræstibúnaði og óæskilegum aðstæðum innandyra. ScandVane er háþróuð lausn sem er hönnuð til að skilja þessa þætti á áhrifaríkan hátt úr loftstraumnum, mun skilvirkari en hefðbundnar veðurhlífar, sérstaklega við erfiðar aðstæður.

ScandVane virkar með því að láta loftið fara í gegnum sérhönnuð lóðrétt leiðniblöð (vanes) sem þvinga loftið til að breyta stefnu margsinnis. Innbyggðir „krókar“ í blöðunum skilja vatnsdropa frá loftinu og sérstakar rásir tryggja að safnað vatn renni neðst úr einingunni, fjarri loftflæðinu inn í kerfið.

ScandVane vatnsvörn í loftinntaki

Þessi vatnsvörn í loftinntak hentar frábærlega til að draga verulega úr líkum á því að vatn, ryk, snjór eða salt berist inn í húsnæði eða loftræstikerfi. ScandVane er fáanlegt með leiðniblöðum úr sjóþolnu áli (marine-grade aluminium) eða polypropylene og með ramma úr áli, ryðfríu stáli (oft AISI 316L fyrir mestu vörn, C5) eða aluzink (C4).

Helstu kostir ScandVane:

  • Öflug vatns- og rakaskilja: Mjög skilvirk vatnsútskiljun, jafnvel við miklar aðstæður (prófað skv. EN 13030).
  • Val um innbyggða ryk-/salt síun: Hægt er að fá lausnina (DDS útgáfur) með innbyggðum forsíum fyrir ryk og saltagnir (síuflokkar allt að Coarse 90% skv. ISO 16890).
  • Fyrirferðalítil hönnun: Tekur minna pláss en margar hefðbundnar lausnir.
  • Sveigjanlegt efnisval: Hægt að velja efni í ramma og leiðniblöð eftir aðstæðum og tæringarhættu.
  • Standard og sérsmíðaðar lausnir: Fáanlegt í stöðluðum stærðum og einnig sérsmíðað eftir þörfum. Hægt er að raða saman einingum til að byggja stór loftinntök.
  • Einfalt viðhald og lágur líftímakostnaður.

Helstu útgáfur:

  • ScandVane DS: Eins þreps lausn sem veitir eingöngu vörn gegn vatni og raka. Tilvalin þar sem ryk er ekki aðalvandamálið.
  • ScandVane DDS: Tveggja þrepa lausn sem inniheldur bæði vatnsútskiljuna og innbyggða forsíu fyrir ryk og saltagnir. Hentar vel þar sem þörf er á alhliða vörn í einni einingu.

Lausnin hefur verið mikið notuð og reynd í nágrannalöndum okkar, meðal annars með mjög góðri reynslu í Færeyjum þar sem veðuraðstæður eru oft krefjandi.

Hver ScandVane eining er oftast sérpöntuð samkvæmt óskum viðskiptavina, miðað við nauðsynlegt loftmagn, lofthraða og þær aðstæður sem hún á að vinna í.


Bæklingur:

ScandVane Bæklingur