Síurammi úr galvaniseruðu stáli – 610x610x75 mm
Síurammi er hannaður sem festingarammi til að setja í loftsíu og festa. Hann hentar hvort sem er þörf er á að setja eina staka loftsíu til dæmis í útvegg eða til að setja saman og byggja síuvegg í til dæmis stórum iðnaðarrýmum, eins og gagnaverum, í matvælaframleiðslu, eða á stöðum þar sem þörf er á að taka inn mikið magn af síuðu lofti.
Hönnun og eiginleikar
- Gerður úr 1.2 mm galvaniseruðu stálplötu, sem tryggir sterka og áreiðanlega smíði.
- Fjögur gat í hverri hlið til að auðvelda uppsetningu.
- Fylgir með tveimur síuhaldarklemmum og þéttingu.
- Kemur með loftþéttri þéttingu (gasket).
- Innbyggðar síufestingarklemmur.
- Hægt er að fá rammann forboran til að auðvelda fljótlega og einfalda uppsetningu á staðnum fyrir stakar eða margar síur.
Notkun
Síurammar eru notaðir til að halda loftræstisíum sem eru stakar eða til að smíða síuveggi. Þá er römmunum raðað upp – hlið við hlið og á nokkrum hæðum og mynda þannig vegg sem er auðvelt að skipta um loftsíur í. Þeir eru auðveldir í uppsetningu í eldri loftræstikerfum eða nýjum með því að raða þeim saman.
Ramminn er hannaður til að halda síum sem eru 75mm til 100mm djúpar og getur hver rammi haldið einni síu. Hann hentar fyrir ýmiskonar síutegundir svo sem pokasíur, flatsíur og þéttar síur (compact filters).
Klemmur eru notaðar til að festa loftsíuna í rammann.
Mál
- Breidd: 610 mm.
- Hæð: 610 mm.
- Dýpt: 75 mm.




