Raki getur haft gríðarlega mikil áhrif á umhverfið, sérstaklega þegar verið er að pakka vöru til sölu eða flutnings, eða setja viðkvæma hluti í geymslu þar sem ekki er tryggt að aðstæður séu réttar.
Þurrkefni virkar þannig að ef það er umframraki, þá sýgur efnið í sig raka, ekki ólíkt því sem tuska myndi gera ef verið væri að þurrka af borði. Þurrkefnið heldur svo rakanum í sér og kemur þannig í veg fyrir skemmdir, svo sem myglu.
Þurrkefni hentar fyrir fjölbreytt verkefni, svo sem í geymslur, þar sem þörf er á að þurrka með 30 gr af þurrkefni. Það hentar ekki til notkunar í matvæli eða lyf, en DDC býður lausnir fyrir slíkt.
Þurrkefni er leið til að halda umhverfinu þurru, samanber efni sem er sett í skókassa eða ferðatöskur. 100 gr af þurrkefni er stærra og getur dregið til sín meiri raka.
Það kemur í hvítum pappírspoka með skilaboðum um að það megi ekki borða (“Do not eat”).
Verndaðu vörurnar frá rakaskemmdum með silica gel – ísogspokum. Pokinn getur dregið til sín allt að 30% af eigin þyngd í vatni. Hann kemur í veg fyrir að raki safnist í kringum vörur í pakningum. Litlir pokar sem auðvelt er að setja með vörunni, t.d. í geymslu eða við sendingar úr landi. Þeir henta hvort sem vörunni er pakkað í kassa, pappa, vakúmpakkað eða í plasti. Silica gel pokar eru mikið notaðir þegar verið er að senda eða geyma t.d. rafmagnstæki, hluti eða aðrar vörur gegn of miklum raka.
- Silica gel er ekki eitrað
- Fjölbreytt notkun
- Okkar gel er án DMF (dimethyl fumarat)
- Stærð: 116 x 65 x 10mm
- Þyngd: 30 gr
Þyngd | 0,1 kg |
---|---|
Ummál (áætluð stærð á pakningum): | 10 × 10 × 1 cm |