Kíktu í verslun okkar á Smiðjuvegi 4a
Kíktu í sýningarrými okkar á Smiðjuvegi 4a (græn gata) og fáðu upplýsingar um loftræstikerfi.

Verslaðu á netinu eða kíktu í loftræstibúðina á Smiðjuvegi 4a (græn gata)

Opnunartími: Má-Fi: 9:00-17:00, Fö: 9:00-16:00. 

Loftvifta í sumarbústaðinn – Glæsileg og orkusparandi (152 cm)

86.010 kr.

Á lager

Brand:

Fullkomin loftvifta í sumarbústaðinn eða viðarklædd rými

Ef þú ert að leita að hágæða loftviftu í sumarbústað eða viðarklædd rými, þá er Sulion Nova framúrskarandi val. Loftviftur bæta loftflæði verulega í sumarbústöðum, sérstaklega þar sem lofthæð er mikil og hlýtt loft safnast við loftið. Með því að setja upp Nova loftviftu dreifist hlýjan betur um allt rýmið – sem er sérstaklega mikilvægt ef varmadæla er til staðar – en á heitum sumardögum nýtist hún einnig til að kæla loftið niður.

Sulion Nova hefur verið sérstaklega vinsæl sem loftvifta í sumarbústað, enda blandar hún saman glæsilegu útliti, hámarksþægindum og orkusparnaði.

Stílhrein hönnun fyrir sumarparadísina

Nova loftviftan sameinar náttúrulegan við og nútímalegt svart matt húsið í „industrial“ stíl, sem gerir hana einstaklega heillandi í hvaða rými sem er. Með 152 cm þvermáli hentar hún stórum rýmum, yfir 32 m², sem oft finnast í sumarbústöðum með opnu skipulagi og góðri lofthæð.

Sérlega vönduð spaðahönnun úr dökkum, náttúrulegum við úr sjálfbærri skógrækt tryggir bæði fallegt útlit og náttúrulega tilfinningu.

SULion Nova loftvifta í sumarbústað

Afkastamikil og hljóðlát loftvifta

Nova er útbúin nýjustu kynslóðar DC 2.0 mótor, sem tryggir hljóðlátan og orkusparandi rekstur. Með sex hraðastillingum geturðu auðveldlega stillt loftflæðið eftir þörfum, hvort sem það er til að kæla á heitum sumardegi eða dreifa hlýju lofti á vetrarkvöldum.

Viftan er einnig með sumar- og vetrarstillingu, sem snýr snúningsstefnunni við eftir árstíð – dregur niður heitt loft á veturna og dreifir kælingu á sumrin.

Horft upp í SULion Nova loftviftu með viðarspöðum

Helstu eiginleikar Sulion Nova loftviftu:

  • Gerð: Sulion Nova

  • Fullkomin loftvifta fyrir sumarbústaðinn / viðarklædd rými: Falleg viðarspaði og matt svart húsið

  • Stærð: 152 cm þvermál – hentar fyrir stór rými (>32 m²)

  • Mótor: DC 2.0 – einstaklega hljóðlátur og orkusparandi

  • Hraðastillingar: 6 hraðar (70–146 RPM)

  • Loftflæði: Öflugt, allt að 12.000 m³/klst

  • Hljóðstig: Aðeins 34–38 dB(A) á lágum hraða

  • Sumar-/Vetraraðgerð:

  • Stýring: Fjarstýring fylgir

  • Tímastillir: Innbyggður

  • Uppsetning: Fyrir flöt eða hallandi loft (allt að 15°)

  • IP Flokkur: IP44 – þolir raka, má nota inni eða úti undir þaki

  • Efni: Málmhús og viðarspaðar

  • Ljós: Þessi útgáfa er án ljóss (hægt að bæta við ljósakitti)


Tæknilegar upplýsingar Sulion Nova:

 

Eiginleiki Gildi
Þvermál 152 cm
Hæð 46 cm
Þyngd (nettó) 7,8 kg
Loftflæði 6180–12000 m³/klst (eftir hraða)
Snúningshraði 70–146 RPM
Hljóðstig 34–52 dB(A)
Afl mótors 5–36 W
Varnarflokkur (IP) IP44
Notkunarhitastig -20°C til +50°C
Spenna 220–240V / 50-60Hz
Stýring Fjarstýring (2xAAA, fylgir ekki)
Sumar/Vetraraðgerð
Tímastillir

Af hverju að velja Sulion Nova loftviftu í sumarbústaðinn?

  • Þú tryggir betri dreifingu á varma eða kælingu allt árið um kring

  • Þú sparar orku með skilvirkum DC mótor

  • Þú nýtur rólegra og hljóðlátari andrúmslofts

  • Þú færð glæsilega og vandaða hönnun sem passar við náttúrulegt umhverfi bústaðarins

Sulion Nova er því fullkomin lausn fyrir þá sem vilja vanda sig þegar kemur að vali á loftviftu í sumarbústað.

Skjöl og tenglar: