Kíktu í verslun okkar á Smiðjuvegi 4a
Kíktu í sýningarrými okkar á Smiðjuvegi 4a (græn gata) og fáðu upplýsingar um loftræstikerfi.

Opunartími jól 2025:
Lokað frá 14 á Þorláksmessu.
Verslunin verður lokuð 29 og 30 vegna talningar.  Lokað á gamársdag!

Verslaðu á netinu eða kíktu í loftræstibúðina á Smiðjuvegi 4a (græn gata)

Opnunartími: Má-Fi: 9:00-17:00, Fö: 9:00-16:00. 

Loftventill í dúkaloft – 125 mm

15.295 kr.

Á lager

Loftdreifari fyrir dúkaloft

Loftdreifari fyrir dúkaloft er nýstárlegur og fallegur loftventill sem er sérhannaður og sérsmíðaður fyrir dúkaloft. Þessir loftdreifara henta ákaflega vel fyrir strekkt dúkaloft sem eru að verða sífellt vinsælli lausn í loftum á Íslandi, en lengi hefur verið skortur á hentugum loftventlum fyrir slíkar lausnir á íslenskum markaði. Í þessum loftdreifara er dúkurinn strekktur og festur, og svo er hann gataður fyrir loftunina, sem tryggir hljóðláta og óáberandi loftrás. Þetta er fullkomin lausn fyrir þá sem leita að hljóðlátri loftræstingu í dúkaloft.

Loftdreifarinn er hannaður fyrir innblástur eða útsog á skilvirkan hátt, sem tryggir ferskt og hreint inniloft. Fágað og hlutlaust útlit fellur hann fullkomlega inn í hönnun fyrir strekkt dúkaloft, hvort sem er í nýbyggingum eða við endurbætur á eldri húsnæði. Hann er húðaður með hálfmöttum hvítum lit (RAL9016), sem er 30% glansandi og UV-þolið, sem tryggir langvarandi snyrtilegt útlit og endingu í íslensku loftslagi.

Loftristinni er komið fyrir við brún dúksins. Stundum þarf að smíða brakket (eins og fyrir ljós) sem heldur loftventlinum og dúkurinn snertir. Sérstök loftdreifiplata er svo það sem er sýnilegt, sem festist upp í loftventilinn (neðri platan), gera uppsetningu einfalda og snyrtilega. Þetta er sérsmíðuð loftrist sem leysir raunverulegt vandamál á markaðnum og er tilvalin fyrir fagmannlega uppsetningu loftræstingar í dúkaloftum.

Kostir dúkalofts og loftristarinnar

Dúkaloft hafa vaxið í vinsældum hér á landi vegna útlits og frábærrar hljóðvistunar. Loftdúkarnir eru fljótir í uppsetningu og er vinnan við uppsetningu einföld og þrifaleg. Þau bjóða upp á fjölbreytt úrval lita og áferða sem býður upp á marga spennandi hönnunarmöguleika. Vandamálið hefur verið að það hefur verið skortur á fallegum lausnum fyrir loftdreifara í þessi loft, en þessi loftventill er sérhannaður til að leysa það.

Dúkarnir geta falið í sér margþættar lausnir þegar kemur að hönnun og bjóða upp á leiðir til að fela alveg hluti líkt og loftræstingu, hátalara, ljós o.fl. sem hægt er að fella bak við dúkana án þess að það komi niður á virkni búnaðarins. Loftristin er frábær lausn sem hefur vantað á íslenskum markaði fyrir dúkaloft, þar sem hún samræmist vel hönnun dúkalofts og býður upp á áreiðanlega loftræstingu. Ef þú ert að leita að loftventli í dúkaloft, þá er þetta lausnin sem þú hefur beðið eftir.

Eiginleikar

  • Tenging: Tengist við Ø125 mm loftræstirör með einangrandi gúmmíþéttingu.
  • Ytra þvermál: 200 mm.
  • Útstæða úr lofti: Stendur 10 mm út úr loftinu.
  • Litur: Hálfmattur hvítur (RAL9016), 30% glans, UV-þolinn.
  • Ráðlagt loftmagn: 20 – 40 m³/klst.