Kíktu í verslun okkar á Smiðjuvegi 4a
Kíktu í sýningarrými okkar á Smiðjuvegi 4a (græn gata) og fáðu upplýsingar um loftræstikerfi.

Verslaðu á netinu eða kíktu í loftræstibúðina á Smiðjuvegi 4a (græn gata)

Opnunartími: Má-Fi: 9:00-17:00, Fö: 9:00-16:00. 

Línurist í loftadúka – 600 mm

23.369 kr.

Ekki til á lager

Láta vita þegar vara kemur aftur!

Línurist fyrir loftadúka

Þessi línurist er sérhönnuð fyrir loftadúka og býður upp á nýja nálgun í loftunarventlum fyrir loftadúka. Ólíkt hefðbundnum loftristum, sérðu aðeins eina mjóa línu, sem gerir hana afar snyrtilega. Línuristar eru frábær lausn fyrir þá sem vilja óáberandi en skilvirka loftræstingu.

Loftadúkar eru að verða sífellt vinsælli lausn í loftum á Íslandi vegna útlits og frábærrar hljóðvistunar. Þeir eru fljótir í uppsetningu og því orðið mjögg. Þó að þeir bjóði upp á fjölbreytt úrval lita og áferða og marga spennandi hönnunarmöguleika, hefur lengi verið skortur á fallegum og hagnýtum loftræstingarlausnum sem falla vel inn í þessa tegund lofts. Þessi línurist fyllir það skarð og er sérhannaður fyrir loftadúka, sem þýðir að hann er óaðskiljanlegur hluti af heildarhönnuninni.

Mikilvægi góðrar loftunar og góðra loftrista

Góð loftun er grundvallaratriði fyrir heilnæmt inniloft, vellíðan og varðveislu bygginga. Rétt loftræsting kemur í veg fyrir uppsöfnun raka, myglu, óþef og mengunarefna sem geta haft skaðleg áhrif á heilsu. Í þessu samhengi skiptir miklu máli að vera með góðar loftristar sem tryggja rétta dreifingu lofts án þess að skerða fagurfræði rýmisins. Þessi línurist tryggir ákaflega skilvirka loftdreifingu með því að vera nánast ósýnileg.

Hönnun og virkni fyrir loftadúka

Þessi línurist er hönnuð til að blása inn eða soga út loft. Línuristinni er komið fyrir við brún loftadúksins, dúkur er strekur með hefbundnum loftadúkalistum.  Oft þarf að smíða brakket (eins og fyrir ljós) sem snertir brúnina, og loftadúkurinn snertir þannig loftristina.  Aftan á ristina er setur loftdreifikassi sem

Hann er gerður úr duftlökkkuðu efni með sérstakri hálfmattri, bakteríudrepandi og UV-þolinni (QUALICOAT) málningu. Staðallitur er RAL 9016.

Eiginleikar

  • Gerð: Línurist, 600 mm löng.
  • Hönnun: Sérhönnuð fyrir loftadúka.
  • Útlit: Þú sérð aðeins eina línu, sem gerir hana mjög auðvelda að fela.
  • Virknihæð án dreifiboxs: 50 mm.
  • Breidd loftraufar: 20 mm.
  • Ráðlagt loftmagn: 40 – 85 m³/klst.
  • Efni: Stál með hálfmattri, UV-þolinni (QUALICOAT) og bakteríudrepandi málningu.
  • Litur: Hvítur (RAL9016).
  • Tenging: Við loftræstirásir með einangrandi gúmmíþéttingu.
  • Uppsetning: í loftadúka, þar sem dúkurinn er gataður fyrir loftunina.