Dkex blásararnir frá Systemair eru afkastamiklir, fyrirferðalitlir og ATEX vottaðir miðflóttablásarar, hannaðir sérstaklega fyrir notkun í hættulegu og krefjandi umhverfi.
Hannaðir fyrir krefjandi aðstæður
Þessir endingargóðu blásarar eru oft notaðir í rýmum eins og rafgeymahleðslurýmum, dragskápum og öðrum há-áhættusvæðum þar sem þörf er á sprengiheldri loftræstingu.
Afkastamikil og fyrirferðalítil hönnun
Dkex blásararnir sameina netta hönnun og mikil afköst. Þeir eru með frambeygt miðflóttaspaðahjól og áreiðanlegan ATEX vottaðan AC mótor.
Sveigjanleg uppsetning
Hægt er að setja Dkex blásara upp í hvaða stöðu sem er (lárétt eða lóðrétt) og fyrirferðalítil hönnunin gerir það að verkum að þeir passa auðveldlega inn í margvíslegar aðstæður.
Sprengiheld vottun (ATEX)
Dkex blásararnir eru vottaðir samkvæmt ATEX tilskipun 2014/34/EU og eru flokkaðir sem II 2 G Ex eb h IIB+H₂ T3 Gb. Þeir eru ætlaðir til notkunar á sprengihættusvæðum 1 og 2 (zone 1 og 2) fyrir loftræstingu á lofttegundum og gasblöndum í flokkum IIA, IIB og einnig vetni (H₂), með hitastigsflokkum Т1, Т2 og Т3. Þeir uppfylla staðlana EN 60079-7:2015, EN 14986:2007 og EN 60079-0:2012.
Eiginleikar
Hús
Hús Dkex blásaranna er gert úr galvaniseruðu stálplötum (tæringarflokkur C3) með innsogsskúffu úr kopar til að koma í veg fyrir neistaflug. Mótorinn er festur á losanlegt lok sem auðveldar þjónustu og viðhald. Blásararnir eru með tengisnúru sem ætluð er til tengingar við utanaðliggjandi ATEX vottaðan tengikassa (seldur sér).
Spaðahjól
Blásararnir eru með miðflóttaspaðahjól með frambeygðum blöðum og einföldu innsogi. Hjólið er gert úr léttri, galvaniseraðri stálplötu og er aflfræðilega jafnvægisstillt.
Mótor
Dkex blásararnir eru búnir ATEX vottuðum AC (riðstraums) ytri snúnings (external rotor) mótorum með endingargóðum kúlulegum. Hægt er að spennustýra mótorunum.
Mótorvörn
Innbyggt í Dkex blásarana er PTC (Positive Temperature Coefficient) hitavörn með útleiðandi vírum sem þarf að tengja við viðeigandi, utanaðliggjandi mótorvarnarbúnað. Við mælum með notkun á UEK230E mótorrofa, sem er vottaður samkvæmt ATEX tilskipun 2014/34/EU.
Stýring
Hægt er að hraðastýra blásurunum með 5-þrepa spennustilli (seldur sér). Einnig er hægt að tengja hraðastýringuna við tímaliða, hitanema, rakamæli o.fl. með ýmsum rafbúnaði.
Uppsetning
Setja má Dkex blásara upp innandyra í hvaða stöðu sem er. Til að koma í veg fyrir að titringur berist í loftræstilagnir er mælt með notkun á sveigjanlegum tengingum (fáanlegar sér).





