Kíktu í verslun okkar á Smiðjuvegi 4a
Kíktu í sýningarrými okkar á Smiðjuvegi 4a (græn gata) og fáðu upplýsingar um loftræstikerfi.

Verslaðu á netinu eða kíktu í loftræstibúðina á Smiðjuvegi 4a (græn gata)

Opnunartími: Má-Fi: 9:00-17:00, Fö: 9:00-16:00.

Brunaloka – Handsmellt – 630mm

94.022 kr.

Á lager

BTT25 brunalokan er CE-merkt og vottuð öryggisvara, hönnuð samkvæmt UNI EN 15650 og flokkuð eftir UNI EN 13501-3. Hún er ætluð til uppsetningar í loftræstistokka þar sem hún tryggir skjóta lokun loftflæðis við eldsvoða. Lokan er búin bræðivari sem virkjast við 72°C og er með handvirkum endursetningarbúnaði. Húsið er smíðað úr galvaniseruðu stáli með hitarofi til að lágmarka hitaleiðni.

Eiginleikar

  • CE-merkt og vottuð samkvæmt UNI EN 15650
  • Prófuð samkvæmt UNI EN 1366/2
  • Brunaflokkun allt að EI 120 S (fer eftir uppsetningu)
  • Hús úr galvaniseruðu stáli með hitarofi
  • Spjald úr kalsíum-silikati á stálnöglum með messingfóðringum
  • Staðlað bræðivar: 72°C (mekanískt)
  • Hámarks lofthraði: 10 m/s

Notkun og svið

Lokan er hönnuð fyrir hreint loft í loftræstikerfum. Hún hentar til uppsetningar í bæði lóðrétta veggi (t.d. létta gifsveggi eða steinsteypu) og láréttar plötur. Virkni hennar byggir á því að rjúfa loftflæði og hindra útbreiðslu elds og reyks milli brunahólfa.

Stærðir

Stærð: 630 mm

Tæknigögn

Vörunúmer (SKU) br-btt-H-630
Tegund BTT25 Brunaloka (Handsmelt)
Stærð 630 mm
Efni Galvaniseruð stálplata, kalsíum-silikat, messing, kopar
Litur
Festing

 

Samræmi við byggingarreglugerð nr. 112/2012

Athugið: BTT25 brunalokan í þessari útgáfu, með eingöngu mekanískum bræðivari (án mótors eða annarrar rafdrifinnar stjórnar), telst almennt ekki fullnægja meginreglum byggingarreglugerðar nr. 112/2012 um bruna- og reyklokur í loftræsikerfum þegar hún er notuð sem hluti brunavarna mannvirkis.

  • Samkvæmt gr. 9.6.14 skulu bruna- og reyklokur í loftræsikerfum vera með bilunarviðvörun. Þessi handsmelta útgáfa er ekki tengd rafrænu vöktunarkerfi og gefur því hvorki merki um bilun né stöðu lokunnar.
  • Sama grein kveður á um að allar brunavarnir loftræsikerfa séu búnar varaafli sem heldur þeim virkum við straumrof. Þar sem enginn rafknúinn stýri- eða mótorbúnaður er til staðar í þessari útgáfu er hvorki unnt að tengja lokuna við varaafl né brunaviðvörunarkerfi.
  • Lokan lokast eingöngu þegar bræðivarinn nær tilteknum hita í loftrásinni og er því hvorki stýrð né vöktuð sem hluti af samþættu brunastjórnkerfi byggingar, eins og almennt er gert ráð fyrir þegar krafist er bruna- og reykloka í loftræsikerfum.

Af þessum ástæðum er þessi tegund brunaloku ekki talin fullnægja kröfum byggingarreglugerðar nr. 112/2012 um bruna- og reyklokur í loftræsikerfum nema brunahönnuður sýni sérstaklega fram á annað. Endanlegt mat á heimilli notkun lokunnar í tilteknu mannvirki er á ábyrgð brunahönnuðar og viðkomandi byggingarfulltrúa.

Skrár