Áfyllingar á bílaloftkælingar

Loftkæling fyrir bíla (CC)
Á undanförnum árum hefur bílum með loftkælingu fjölgað verulega á Íslandi. Loftkæling í bílum eru viðkvæm tæki og nauðsynlegt er að fagmaður sjái um viðgerðina á tækjunum. Íshúsið býður upp á viðgerð á loftkælingum í bílum (A/C – Air condition) sem er framkvæmd af fagmönnum.
Fagmenn Íshúsins hafa yfir að ráða sérútbúin tækjabúnað til að sinna viðhaldinu, koma í veg fyrir að óhreinindi berist í kerfið eða óþarfa raki. Jafnframt skiptir gríðarlegu máli til að afköst tækjanna sér rétt að loftkælingin sé rétt stillt af fagmanni að loknum áfyllingu eða viðgerð.
Sé ekki rétt fyllt inn á kerfi er alltaf hætta á að varanlega skemma kerfið eða kæliþjöppu kerfisins.
. Freonið fyrir bíla og þau efni sem hafa tekið við eru mjög viðkvæm fyrir óhreinindum og raka, ásamt því að þurfa rétt magn til þess að virka. Séu það ekki til staðar er mögulegt að eyðileggja kerfið.
Sú þjónusta sem Íshúsið býður upp á er að gera við þá bilum sem er lang algengust í slíkum kerfum, en það er að vegna hristings eða vegna lítilliar notkunar. Þetta er lang algengasta bilunin á slíkum kerfum. Sú þjónusta sem íshúsið býður upp á er að fylla inn á kerfið og kanna hvort það sé stór leki á aðgengilegum stöðum í vélarrými. Mjög erfitt og kostnaðarsamt getur verið að leita að lekum sem eru á stöðum sem eru ekki auðveldlega aðgengilegir úr vélarrými (“húddi”). Af þessum sökum er ekki hægt að taka ábyrgð á því að viðgerð sé endanleg. Sé leki ekki sjáanlegur er ekki mögulegt að sjá hvort lekin hafi verið á stað sem er falin eða hvort lekin sé tilkominn vegna hægs leka vegna notkunarleysi og hristings. Sé bilum meiri en bara vegna þess og þurfi að fara í frekari viðgerðir vegna þess að bilum er meiri háttar þarf að leita til umboðs viðkomandi bíls eða viðurkenndra bifreiðaverkstæða.











