Varmadælur
Varmadælur – þú greiðir fyrir 1 kw en færð 4!
Þegar kemur að varmadælum skiptir máli að velja vel. Hérna skiptir miklu máli bæði hvað varðar tæknilega aðstoð, en varmadælurnar eru notaðar til þess að hita upp hús og því þarf að vera í boði bæði varahluta og viðgerðarþjónusta. Einnig skiptir máli við valið að fjárfesta í nýtinni varmadælu, þar sem upphafskostnaður getur oft í raun verið mjög lítil hluti miðað við háan rekstrar kostnað ef dælan er ónýtin.
Íshúsið hefur verið leiðandi í að bjóða varmadælur, varmadælurnar frá Íshúsinu eru flestar frá Fujitsu en einnig hefur Íshúsið boðið upp á varmadælur frá AUX, sem er einn stærsti framleiðandi á loftkælum í Kína.
Með breytingum á raforku lögunum breyttust forsendur og fram kom töluverð eftirspurn frá köldum svæðum, en á svæðum þar sem hitað er með rafmagni margfaldaðist kostnaðurinn. Varmadælur eru lausn fyrir þessa aðila til að lækka hann aftur.
Varmadæla nýtir sér hitamismun á milli rýmisins inni og svo úti, varmadælan er komið fyrir úti, einföld lögn á milli og þú getur byrjað að blása heitu lofti inni. Því færðu 4 kw fyrir hvert 1 kw sem þú borgar í rafmagn! Varmadælan nær að nýta sér þennan hitamismun alveg niður í -15°C.
Íshúsið ehf býður upp á varahluta þjónustu og viðgerðarþjónustu á þessum dælum. Einnig er í boði viðgerðarþjónusta hjá vélvirkjum með mikla reynslu af uppsetningu og viðhaldi á varmadælum. Iðnaðarmenn Íshúsins eru með áralanga reynslu af uppsetningu og rekstri varmadælum og loftkælitækjum.
Fujitsu hefur verið leiðandi í þróun á varmadælum og eru meðal stærstu aðila í heiminum í framleiðslu á þessum dælum. Það sem skiptir mestu er nýtnin en Fujitsu hefur náð gríðarlegum árangri í nýtni á þessum dælum. Þetta skiptir öllu máli þegar kemur að rekstrarkostnaði dælunnar.
Vamadælur fyrir sumarbústaði
Varmadæla í sumarbústað hefur náð gríðarlegum vinsældum undanfarin ár. Á meðan engin er á staðnum er hægt að lækka hitastigið en tryggja lágmarkshitastig í bústaðnum. Varmadælur virkar einnig sem loftkæling á sumrin.
Inverter gerð
Inverter gerð notar sérstaka tækni til þess að stýra nákvæmlega hraða dælunnar, þannig snýst dælan alltaf á réttum hraða miðað við afköst. Þetta kemur í veg fyrir að dælan sé alltaf að starta og stoppa og nýtir rafmagnið til fullnustu.
Hægt er að bera þetta saman við bíl, hefðbundin týpa myndi fara á fullan snúningi um leið og grænt ljós kæmi á og haldast þar þangað til komið væri á næsta ljós, á meðan inverter gerðin myndi fara rólega af stað og fara á æskilegan hraða, keyra svo á réttum hraða fram hjá næstu ljósum án þess að þurfa að stoppa.
Helstu kostir:
- Nærð hraðar æskilegu hitastigi
- Ræsingar eru 30% færri
- Eyðir 30% minna rafmagni að meðaltali
- Minni sveiflur í hitastigi











