Loftkæling

Á undanförnum árum hafa vinsældir loftkælinga aukist mjög. Veðri hefur farið hlýnandi og útaf hönnunum á húsum hefur þetta nú vaxið til muna. Auk þess hefur verð á þessum búnaði lækkað meðal annars því að Íshúsið hefur verið í fararbroddi að bjóða þennan búnað á samkeppnishæfu verði.

Glugga Loftkæling

Kerfin eru einföld, ekki þarf að leggja neinar kælilagnir heldur er því komið fyrir í gat í vegg eða glugga. Þetta er einfaldasta og ódýrasta lausnin þegar hún hentar.

Frekari upplýsingar

Vegg loftkæling

Þetta er algengustu kerfin, kerfið skiptist í innikerfi og útikerfi. Leggja þarf lagnir á milli kerfanna. Útihlutanum er oftast komið fyrir fyrir utan húsið og kannast margir þessa kassa (útikerfin) utan á húsunum á ferðum sínum erlendis. Hægt er að láta þessi kerfi bæði hita og kæla. Þetta er langhljóðlátasta lausnin og hentar því best í flestum tilvikum.

Frekari upplýsingar

Færanlegar Loftkælingar

Færanlegu kerfin eru með barka sem blæs út heitu lofti. Kerfið sjálft hringrásar loftinu inni í herberginu. Þessi kerfi eru öflug miðað við stærð og eru mjög ódýr og einföld í notkun. Eina sem þarf að gera er að setja kerfið í samband og leiða barkann út úr herberginu og þá er komin öflug kæling.

Frekari upplýsingar

Multi split loftkæling

Kerfi með einu vélakerfi en tengist í marga notendur. Hentar í skrifstofuhúsnæði þar sem það eru margar litlar skrifstofur sem þarf að kæla niður.

Frekari upplýsingar

Innfelld Loftkæling

Innfellt í falskt loft með mörgum möguleikum. Hentar vel í skrifstofu og verslunarrými þar sem langt er á milli útveggja. Blásarinn er mjög hljóðlátur en getur afkastað miklu í kælingu.

Frekari upplýsingar

Hafðu samband við sölumann í síma: 566-6000, við komum á staðinn og gerum úttekt með þér, þér að kostnaðarlausu.

Deildu eða prentaðu:
  • Print
  • Facebook
  • Twitter
  • Google Bookmarks
  • PDF

Hafa samband

Nafn (Nauðsynlegt):

Netfang (Nauðsynlegt):

Fyrirspurn:

Ertu tölva?
1+1=?