Loftkæling fyrir bíla

Loftkæling fyrir bíla

Loftkæling fyrir bíla

Þótt Íshúsið bjóði upp á loftkælingu fyrir bíla, sem og loftkælingu fyrir glugga, þá mælir Íshúsið ekki með þessari útfærslu.

Við gerum hins vegar við biluð kælikerfi í bíla.

Loftkæling til Haíti

Á dögunum var leitað til Íshússins ehf um að taka þátt í hjálparstarfi á Haíti með því að gefa loftkælikerfi, sem myndi gagnast á skurðstofum og á öðrum stöðum þar sem ekki væri hægt að starfa vegna hita.

Starfsmönnum Íshússins var ljúft og skilt að gefa loftkælingu til hjálparstarfsins.

Skaðlegir kælimiðlar frá Kína

Fyrirtækið Sabroe / Johnson Controls hefur sent frá sér viðvörun út af kælimiðlum frá Kína sem eru skaðlegir. Bæði eru þeir með skaðleg efni sem geta valdið líkamlegu tjóni komist þeir í snertingu við fólk. Hins vegar eru þeir skaðlegir þeim kerfum sem þeir eru settir á.

Rétt er að taka fram að Íshúsið selur eingöngu kælmiðla frá viðurkenndum framleiðendum.

Tilkynnining frá fyrirtækinu

Síðustu dagar Freon R-22

Um áramótin taka í gildi nýjar reglur um freon R-22, sem hefur verið ein algengasti kælimiðill í landinu en frá og með þeim tíma er bannað að flytja inn kælimiðlinn. Undanfarin ár hefur verið heimilt að flytja kælimiðlinn inn samkvæmt kvóta og endurunninn.

Nú fer því hver að verða seinastur að tryggja sér varabirgðir af miðlinum eða gera nauðsynlegar breytingar á kælikerfum sínum.

Varmadælur vinsælar

Undanfarið hefur mikið verið um fyrirspurnir um varmadælur, enda kyndingarkostnaður  hækkað töluvert. Íshúsið hefur bæði boðið upp á kínverskar varmadælur og einnig hágæða varmadælur frá Fujitsu. Frekari upplýsingar hjá sölumönnum Íshússins í síma 566 6000.

Varahlutir og viðgerðir á kælitækjum

Íshúsið býður upp á mikið úrval af varahlutum fyrir kæltæki, en vegna ástandsins á Íslandi er augljóst að mikið hefur aukist að gert sé við gömul kælitæki í staðin fyrir að skipta um þau. Íshúsið á mikið úrval af varahlutum og kælimiðlum fyrir kælitæki, ef þú ert með bilað kælitæki getur þú haft samband við Íshúsið og fengið upplýsingar hvort Íshúsið eigi varahluti eða geti gert við kælitækið.

Hönnun og eftirlit

Hönnun og eftirlit á kæli- og frystikerfum.

Áfyllingar á bílaloftkælingar

Tökum að okkur að lofttæma og fylla á loftkælingar í bílum t.d. eftir viðgerðir eða ef að lekið hefur útaf kerfinu yfir árin.