Varmadæla – eins og það á ekki að gera þetta
Það skal sérstaklega tekið fram að þetta eru vinnbrögð sem tíðkast ekki, en þörf áminnig fyrir þá sem kaupa sér varmadælur að fá fagmenn til að setja upp varmadælurnar.
Það skal sérstaklega tekið fram að þetta eru vinnbrögð sem tíðkast ekki, en þörf áminnig fyrir þá sem kaupa sér varmadælur að fá fagmenn til að setja upp varmadælurnar.

Íshúsið ehf hefur boðið upp á Logtag sírita í nokkurn tíma en síritarnir eru á stærð við greiðslukort. Í kjölfar þess að eftirspurn eftir þessum góðu síritum hefur aukist höfum við fjölgað tegundunum sem við nú bjóðum upp á.
Auk þess að vera með sírita sem skráir hita, bjóðum við nú upp á sírita sem getur skráð rakastig og svo önnur gerð sem er með ská til að skoða upplýsingar sem eru skráðar.
Sveitarstjórn Dalabyggðar hvatti alþingismenn á fundi sínum þriðjudaginn 18. janúar sl. til að breyta lögum um virðisaukaskatt þannig að heimilt sé að endurgreiða virðisaukaskatt vegna kaupa á varmadælum og tengdum búnaði til húshitunar (sjá frétt á Skessuhorni).
Íshúsið tekur undir þessa hvatningu enda eru varmadælur umhverfisvæn og hagkvæm leið til húshitunar þar sem orkunýting er hámörkuð.
Um áramótin taka í gildi nýjar reglur um freon R-22, sem hefur verið ein algengasti kælimiðill í landinu en frá og með þeim tíma er bannað að flytja inn kælimiðlinn. Undanfarin ár hefur verið heimilt að flytja kælimiðlinn inn samkvæmt kvóta og endurunninn.
Nú fer því hver að verða seinastur að tryggja sér varabirgðir af miðlinum eða gera nauðsynlegar breytingar á kælikerfum sínum.